Samfélags- og samstarfsverkefni

Samfélags- og samstarfsverkefni

Það eykur öryggi og lífsgæði starfsfólks að halda vinnusvæðinu og umhverfi okkar snyrtilegu. Um leið sköpum við gott andrúmsloft kringum starfsstöðvar HB Granda. Það er stefna HB Granda að styðja við alla þá starfsemi á Vopnafirði, Akranesi og í Reykjavík sem tengist á einhvern hátt félaginu eða er mikilvæg fyrir samfélögin. HB Grandi vill styðja íslenska menningu og samfélag og hefur tekið þátt í ýmsum verkefnum er varða uppbyggingu og innviði samfélagsins.

Samstarf og styrkir

HB Grandi tekur virkan þátt í að stuðla að uppbyggingu og framþróun í samfélaginu með því að styðja við góð málefni. Verkefnin eru fjölbreytt og með þeim styður HB Grandi m.a. öflugt slysavarna- og björgunarstarf, menningarstarf og nýsköpun og fræðslu tengda sjávarútvegi.

HB Grandi styður við valin verkefni, sem efla samfélagið, vernda umhverfið og auka nýsköpun, með því að styrkja félagasamtök og fyrirtæki sem stuðla að jákvæðri samfélagsþróun. Styrktarbeiðnir berast félaginu í gegnum heimasíðu félagsins þar sem styrkjanefnd tekur beiðnir til umfjöllunar.

Styrkjum HB Granda má skipta upp í eftirfarandi flokka:

  • Umhverfismál
  • Öryggi og slysavarnir
  • Samfélagsmál
  • Menning og listir
  • Efling atvinnulífs
  • Fræðsla og nýsköpun
  • Íþróttir, æskulýðsstarf og forvarnir

Umhverfisverkefni

Hvað höfum við gert?

Hvað höfum við gert? er íslensk þáttaröð í 10 þáttum þar sem fjallað er um áskoranir mannkynsins í loftslagsmálum og rýnt í afleiðingar og áhrif loftslagsbreytinga á lífríki og samfélög, hérlendis og í heiminum öllum. Þáttaröðin hóf göngu 10. mars 2019 á RÚV og voru unnir af Sagafilm í samstarfi við HB Granda, Félag Sameinuðu þjóðanna, ríkisstjórnina, Landsbankann, Landsvirkjun, OR og Faxaflóahafnir.

Grænar Strendur

HB Grandi var samstarfsaðili verkefnisins Grænar Strendur þar sem K100 hvatti til græns lífstíls í apríl 2018. Almenningur var hvattur til að gera betur í flokkun og endurvinnslu, neyslu og innkaupum á heimilinu og með samgöngum almennt. Dagana 9. - 30. apríl var fólk hvatt til að safna rusli við strendur landsins og birta mynd af dugnaðinum í verki undir myllumerkinu #Graenarstrendur.

Sere 2018

Landgræðslan, Landbúnaðarháskóli Íslands, Landgræðsluskóli háskóla SÞ og Landvernd, í samstarfi við evrópsk vistheimtarsamtök, héldu í September 2018 alþjóðlega ráðstefnu í Reykjavík undir heitinu: Endurheimt vistkerfa á tímum loftslagsbreytinga, SERE 2018. HB Grandi var gullstyrktaraðili ráðstefnunar.

Hafið - Öndvegissetur um verndun hafsins

HB Grandi er einn af stofnaðilum Hafsins, öndvegisseturs um sjálfbæra nýtingu og vernd hafsins. Setrinu er ætlað að vinna að útfærslu hugmynda um verndun hafsins með því að draga úr mengun með grænni tækni. Verkefnið er umfangsmikið og metnaðarfullt og er stutt af fjölmörgum aðilum auk HB Granda. Hafið er vettvangur samstarfs fyrirtækja, opinberra aðila og rannsóknarstofnana sem vilja vinna að hafverndarmálum á alþjóðavettvangi. HB Grandi átti fulltrúa í stjórn Hafsins árið 2018.

Arctic Circle

HB Grandi er einn af styrktaraðilum Norðurslóðaráðstefnunnar Arctic Circle. Arctic Circle er opinn lýðræðislegur vettvangur með þátttöku ríkisstjórna, stofnana, fyrirtækja, háskóla, umhverfissamtaka og annarra sem áhuga hafa á þróun norðurslóða og afleiðingum hennar fyrir framtíð heimsins. Sem slíkur er Arctic Circle stærsti vettvangur sinnar tegundar í heiminum. Formaður Arctic Circle er Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.

Yfirlýsing um markmið í loftslagsmálum

HB Grandi undirritaði ásamt 103 öðrum íslenskum fyrirtækjum og stofnunum yfirlýsingu um markmið í loftslagsmálum þann 16. nóvember 2015 í Höfða. Yfirlýsingin var afhent í tengslum við loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram fór í París í desember 2015. Reykjavíkurborg og Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, hafa haldið utan um yfirlýsingu fyrirtækjanna. Markmið „Loftslagsverkefnisins“ eru að

  • draga úr losun gróðurhúsalofttegunda,
  • minnka myndun úrgangs,
  • mæla árangurinn og gefa reglulega út upplýsingar um stöðu ofangreindra þátta.

Öryggi og slysavarnir

Slysavarnarfélagið Landsbjörg

HB Grandi er stuðningsaðili björgunarsveita á Íslandi. Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi og ein stærstu sjálfboðaliðasamtök á Íslandi. Markmið starfseminnar er að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum. HB Grandi vill styðja við bakið á öflugu slysavarna- og björgunarstarfi bæði til sjós og lands enda treysta sjómenn okkar á björgunarsveitir ef eitthvað bjátar á.

Öryggishópur sjávarútvegsins

Öryggishópur sjávarútvegsins starfar innan Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, og hefur það markmið að fækka slysum í greininni. Hópurinn tók formlega til starfa í apríl 2016. HB Grandi átti fulltrúa í hópnum árið 2018. Fulltrúarnir koma frá stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og eiga það sammerkt að vinna að öryggismálum. Fyrsta verkefni hópsins var að skrifa Öryggishandbók fyrir fiskvinnslur sem nú er aðgengileg á vef SFS og Rannsóknarsjóðs síldarútvegsins sem styrkti verkefnið. Öryggishandbókin er uppflettirit fyrir stjórnendur í sjávarútvegi og er ætlað að tryggja öflugt vinnuverndarstarf innan fyrirtækjanna.

SAMFÉLAGSVERKEFNI

Heimsþing kvenleiðtoga

HB Grandi er einn af bakhjörlum Heimsþings kvenleiðtoga en það var haldið í Hörpu 26. – 28. nóvember. Yfir 400 kvenleiðtogar frá 80 löndum sátu þingið.

Í tilefni af Heimsþinginu bauð HB Grandi hópi þátttakenda til hádegisverðar í Marshallhúsinu ásamt konum frá félagi kvenna í sjávarútvegi.

Fjölskylduhátíð HB Granda á sjómannadaginn

HB Grandi heldur árlega fjölskylduhátíð á athafnasvæði félagsins í Reykjavík á sjómannadaginn. Boðið er upp á veitingar og skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna með frábærum skemmtikröftum.

Góðgerðarmál

HB Grandi styður starfsemi í sinni heimabyggð sem er Reykjavík, Akranes og Vopnafjörður. Styrkirnir flokkast undir ýmis málefni, en öll tengjast þau samfélagi byggðarinnar á einhvern hátt. HB Grandi hefur stutt Mæðrastyrksnefnd á Akranesi síðustu ár sem og Menntunarsjóð Mæðrastyrksnefndar. HB Grandi styrkti einnig Ljósið og fjáröflunarátakið Allir Krakkar þar sem Stígamót safnaði fyrir forvarnarstarfi vegna kynferðisofbeldis og kynferðislegar áreitni haustið 2018. Einnig hefur félagið stutt við Félag heyrnarlausra síðustu árin.

Menning og listir

Marshallhúsið

HB Grandi er eigandi Marshallhússins sem staðsett er á athafnasvæði félagsins í Reykjavík. Marshallhúsið er nýr vettvangur lista við gömlu höfnina í Reykjavík. Húsið var byggt árið 1948 sem síldarbræðsla en hýsir nú Nýlistasafnið, Kling og Bang, Stúdíó Ólafs Elíassonar ásamt vinnustofu og veitingastaðnum La Primavera Ristorante. Hugmyndina að nýju og breyttu hlutverki Marshallhússins má rekja til arkitektanna sem starfa hjá arkitektastofunni Kurtogpi, þeirra Ásmundar Hrafns Sturlusonar og Steinþórs Kára Kárasonar, en stofan sá um alla arkitektavinnu vegna breytinganna. Verkefnið hófst formlega 19. febrúar 2016 en þá var skrifað undir samninga og hafist handa við framkvæmdir. Marshallhúsið, glæsileg listamiðstöð, var formlega opnuð 18. mars 2017.

Víkin sjóminjasafn

Sjóminjasafnið í Reykjavík var formlega stofnað árið 2004 og fyrsta sýningin opnuð í júní 2006. Hlutverk þess er að safna og miðla sögu og minjum tengdum sjó og sjómennsku, einkum þeim sem hafa gildi fyrir sögu Reykjavíkur. Safnið er staðsett við Grandagarð, í húsnæði sem áður hýsti Bæjarútgerð Reykjavíkur (BÚR), einn af forverum HB Granda.

HB Grandi er einn helsti styrktaraðili Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Skrifað var undir samstarfssamning árið 2014 til fimm ára eða út árið 2018. Víkin hefur því haldið áfram þeirri uppbyggingu sem hófst á safninu árið 2005.

Þúfa

Árið 2013 efndi HB Grandi, í samstarfi við Samband íslenskra listamanna og Faxaflóahafnir, til samkeppni um nýtt listaverk til að prýða umhverfið við Ísbjörninn, nýja frystigeymslu félagsins sem byggð var sama ár. Fyrir valinu varð verkið Þúfa eftir listakonuna Ólöfu Nordal. Þeir sem ganga upp á toppinn njóta eins tilkomumesta útsýnis yfir Reykjavík sem völ er á. Þúfa var vígð við hátíðlega athöfn þann 21. desember 2013 og er strax orðin að vel þekktu kennileiti í Reykjavík.

Heimildarmynd um ísfisktogarann Ásbjörn

Á árinu 2017 var gerð heimildarmynd um ísfisktogarann Ásbjörn sem Engey leysti af hólmi. Ásbjörn var smíðaður árið 1978 og reyndist afburðavel. Þrátt fyrir að hafa verið með þeim minnstu í hópi togara HB Granda var hann iðulega meðal þeirra aflahæstu og var raunar þrettán sinnum aflahæsti ísfisktogari landsmanna, síðast árið 2014. Ásbjörn landaði um 227 þúsund tonnum í 1.542 löndunum; aflaverðmætið er um 40 milljarðar króna að núvirði.

Efling atvinnulífs

Sjávarútvegsráðstefnan

HB Grandi hefur undanfarin ár verið einn af aðalstyrktaraðilum Sjávarútvegsráðstefnunnar. Markmið hennar er að ná saman á einum stað þversniði af greininni til að vinna megi að framförum og sókn. Sjávarútvegsráðstefnan er vettvangur þar sem fólk hittist og styrkir sambönd og samstarf í greininni. Á ráðstefnunni er fjallað um mikilvæg viðfangsefni á sviði sjávarútvegs og standa vonir til þess að hún reynist ráðstefnugestum uppspretta hugmynda og hvatning til góðra verka.

Stjórnmálaflokkar

HB Grandi styrkti á árinu þá stjórnmálaflokka sem eiga fólk á þingi og sóttu um styrk.

Fræðsla og nýsköpun

Verðlaunasjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright

Verðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright eru veitt íslenskum vísindamanni sem náð hefur framúrskarandi árangri á sérsviði sínu í vísindum eða fræðum og miðlað þekkingu sinni til framfara í íslensku þjóðfélagi. Stofnandi sjóðsins var frú Ása Guðmundsdóttir Wright og gaf hún Vísindafélagi Íslendinga peningagjöf á hálfrar aldar afmæli félagsins hinn 1. desember 1968. HB Grandi er hollvinur sjóðsins og gerir sjóðnum kleift að veita árlega ein veglegustu verðlaun sem veitt eru til vísindamanna hér á landi.

Íþróttir, æskulýðsstarf og forvarnir

HB Grandi styrkir íþrótta- og æskulýðsstarf í þágu barna og ungmenna á Akranesi og Vopnafirði. Þannig styður félagið við almenna lýðheilsu, bæði líkamlega og andlega.