Losun gróðurhúsalofttegunda HB Granda jókst um 6% milli áranna 2017 og 2018 þegar leiðrétt hefur verið fyrir kælimiðlum sem koma fyrst inn í uppgjörið fyrir árið 2018. Stærsti hluti losunar gróðurhúsalofttegunda hjá félaginu er vegna olíunotkunar. Ástæða aukningarinnar er að mestu olíunotkun vegna aukinna veiða hjá ísfiskskipum og uppsjávarskipum en heildarveiði jókst úr 152.868 tonnum árið 2017 í 167.233 tonn árið 2018.
Margt bendir til þess að ástand hafsins sé að breytast hratt til hins verra og að súrnun sjávar, hlýnun og fleiri umhverfisþættir komi til með að ógna lífríki hafs og jarðar á komandi árum. Síðasta haust gaf ríkisstjórn Íslands út aðgerðaráætlun í loftlagsmálum sem hefur það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Áætlunin er metnaðarfull og er ætlað að gera Íslandi kleift að standa við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamningnum fram til ársins 2030.
Þó að olíunotkun á Íslandi sé í sögulegu hámarki, hefur hún dregist saman í sjávarútvegi. Olíunotkun HB Granda hefur frá árinu 2005 dregist saman um 46 %. Olíunotkun skipa hefur dregist saman um 37% og fiskmjölsverksmiðja um 87% eins og sjá má á eftirfarandi grafi.
Ástæðuna má rekja til margvíslegra þátta. Minni olíunotkun hlýst ekki síst af sterku fiskveiðistjórnunarkerfi sem hefur byggt upp sterka fiskistofna. Færri og afkastameiri skip nýta eldsneytið nú betur en áður; með endurnýjun skipaflotans hefur HB Grandi alfarið hætt notkun á svartolíu og á sama tíma aukið hlut vistvænni orkugjafa, meðal annars með því að tengja skip við rafmagn og hitaveitu þegar þau leggjast að bryggju. Hið sama gildir um fiskmjölsverksmiðjur félagsins, sem áður voru keyrðar á olíu en eru í dag að mestu leyti rafvæddar líkt og aðrar vinnslustöðvar í landi, sem um árabil hafa keyrt á rafmagni og verið þróaðar til að fullnýta allt hráefni, draga úr sóun og skapa aukin verðmæti í leiðinni.
HB Grandi hefur markvisst unnið að kortlagningu á umhverfisáhrifum félagsins undanfarin ár og hefur haldið áfram að þróa umhverfismælaborð sem sýnir með stafrænni tækni alla helstu þætti umhverfismála félagsins þannig að styðja megi við markmið um bætt vistspor og þær aðgerðir sem ráðist er í hverju sinni.
Til að tryggja áreiðanleika og tíðni umhverfisuppgjöra HB Granda byggist söfnun umhverfisupplýsinga á sjálfvirkri gagnasöfnun frá meginstarfsemi og birgjum félagsins. Þannig má fylgjast með ávinningi af einstökum aðgerðum í umhverfismálum.
Mengun hafsins er bein ógn við afkomu sjávarútvegs á Íslandi. HB Grandi mun leita allra leiða til að minnka mengun frá eigin starfsemi og halda áfram að þróa rekstur sinn til sjálfbærra veiða og vinnslu.
Fiskveiðiauðlindin við Ísland er endurnýjanleg svo framarlega sem fiskveiðar eru stundaðar á ábyrgan hátt. Góður árangur íslensks sjávarútvegs í umhverfismálum stafar því ekki síst af ábyrgri nýtingu á fiskistofnum. Vísindaleg varúðarnálgun við ákvörðun á aflareglu fyrir hverja fisktegund er grundvöllur aflamarks. Fiskistofnar eru í betra ásigkomulagi eftir að núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi var tekið upp. Það er betra að skipuleggja veiðar, afli á úthaldsdag hefur aukist verulega og veiðitúrar einnig styst. Ábyrgar veiðar hafa hvatt fólk til nýsköpunar þar sem meiri áhersla er lögð á betri nýtingu á aflanum og leitað lausna um að skapa aukið virði og draga úr kostnaði.
HB Grandi tekur virkan þátt í samstarfi sem stuðlar að sjálfbærri nýtingu fiskistofna, gæðum og ábyrgð gagnvart umhverfi og samfélagi. Markmiðið með þátttöku HB Granda er að stuðla að áframhaldandi styrkingu fiskistofna, framþróun í fyrirtækinu og atvinnugreininni, aukinni samvinnu og tryggu markaðsaðgengi.
Með því að skrá markvisst umhverfisþætti í starfsemi HB Granda fær fyrirtækið stöðuna í rauntíma og heldur nákvæmt yfirlit um þróun mála svo að skýrlega sjáist hvar gera má betur. HB Grandi hefur sett af stað umfangsmikið umhverfisverkefni undir yfirskriftinni „Hrein virðiskeðja sjávarútvegs“ (HVS).
Öllum umhverfisupplýsingum, er varða rekstur félagsins, er streymt stafrænt frá upprunastað, ýmist frá sjó eða landi, í þar til gerðan umhverfisgagnagrunn. Grunnurinn veitir ábyrgðaraðilum félagsins aðgang að upplýsingunum, sem aftur brýnir fyrirtækið á markvissan hátt til aðgerða sem hafa þann tilgang að draga úr umhverfisáhrifum. Hluti hugbúnaðarins tryggir að HB Grandi geti fylgt umhverfislöggjöf á hverjum tíma og einnig má veita stjórnvöldum aðgang til stafræns eftirlits. Enda þótt hugbúnaðurinn hafi verið tekinn í notkun í júní 2016 er hann enn í þróun og er innleiðing hans innan félagsins í fullum gangi.
HVS-verkefnið felur m.a. í sér eftirfarandi meginþætti:
Þetta felur í sér notkun tæknilegrar þekkingar til að þróa hjá HB Granda nýja og endurbætta verkferla sem munu umbylta getu félagsins til að stýra starfsemi þess í takt við markmið á sviði umhverfis- og orkustjórnunar.
Undir HVS verkefnið heyrir að greina olíunotkun félagsins. Á árinu 2018 var áhersla sett á að bæta eldsneytisnotkun skipa. Í því sambandi var lagt upp með að þróa líkan sem nýtist við olíustýringu skipa og veita útgerðarstjórum, skipstjórum og öðrum ábyrgðaraðilum HB Granda hugbúnaðarlausn til að greina með ítarlegum hætti olíunotkun við veiðar. Verkefnið var að teikna upp skýra og aðgengilega mynd af orkunotkun fyrir hverja veiðiferð með það að markmiði að greina tækifæri til olíusparnaðar og draga þannig úr kolefnisfótspori á veiddum afla.
Vissir lykilþættir veiðanna voru skilgreindir við orkustýringu, s.s. olíunotkun ferða til og frá veiðisvæði, olíunotkun við veiðar og á hvert hol. Fyrir vikið fæst góð yfirsýn um veiðiferðir allra skipa útgerðarinnar. Hægt er að fylgjast með:
Þetta þróunarverkefni hefur verið unnið með ráðgjafafyrirtækinu Klappir Grænar Lausnir hf.
Olíunotkun skipa HB Granda hefur minnkað verulega í kjölfar sameiningar við fjölmargar útgerðir allt frá árinu 1985. Hagræðingin hefur m.a. falist í því að taka á annan tug skipa úr rekstri. HB Grandi var með átta skip í rekstri á árinu 2018, sem er einu færra en Grandi gerði út árið 1985, þrátt fyrir samruna við mörg önnur félög eftir sameiningu BÚR og Ísbjarnarins. Þessar sameiningar hafa falið í sér að veiðiheimildir félagsins hafa nánast þrefaldast þótt skipunum hafi ekki fjölgað. Sambærileg þróun hefur átt sér stað meðal annarra sjávarútvegsfyrirtækja um land allt.
Mikil tækniþróun hefur átt sér stað á síðustu árum og margvísleg ný þekking og færni við veiðar komið fram. Einnig hefur orðið framþróun í fiskileit, þróun veiðarfæra, veiðitækni, og meðhöndlun afla um borð. Af þessum sökum og vegna betra ástands fiskistofna og stærri skipa hefur afli á sóknareiningu nær þrefaldast á tímabilinu.
Hlutfall af hreinu jarðefnaeldsneyti (e. marine gas oil) skipa jókst úr 1,9% 2016 í 42% árið 2018. Eftir að brennslu svartolíu var hætt hefur losun á aukaefnum vegna brennslu jarðefnaeldsneytis, s.s. brennisteins, nituroxíðs og sótagna (e. PM), orðið að óverulegum hluta í losun félagsins.
Eftirfarandi mynd sýnir eldsneytisnotkun HB Granda síðustu þrjú árin:
Eldsneytisnotkun skipa jókst um 1,5 milljón lítra á milli ára. Olíunotkun á tonn af veiddum afla minnkaði hjá frystiskipum og ískfiskskipum. Á hinn bóginn jókst olíunotkun uppsjávarskipa miðað við tonn af afla. Meira var því haft fyrir veiðum á uppsjávarafla á árinu 2018, meðal annars vegna þess að makrílveiðar fóru fram lengra frá Vopnafirði en oft áður og þrýstingur í þá átt að halda vinnslunni gangandi. Einnig leiddu kröfur yfirvalda um hvar stunda mætti veiðar á kolmunna til þess að lengra þurfti að sækja minni afla. Aukna eldsneytisnotkun 2018 í samanburði við árið 2017 má einnig að hluta til rekja til sjómannaverkfalls sem stöðvaði veiðar í sjö vikur árið 2017.
Ef olíunotkunin er borin saman við árið 2016 sést að olíunotkun skipa hefur dregist saman um 0,5 milljón lítra. Markmið félagsins er að draga enn frekar úr olíunotkun skipaflotans bæði með kaupum á nýjum skipum og innleiðingu á öflugri upplýsingatækni sem tryggir heildstæða rauntímayfirsýn um olíunotkun skipastólsins. Tekin var ákvörðun á árinu 2017 um að hætta alfarið notkun svartolíu á skip hjá HB Granda og var því engin svartolía notuð árið 2018.
Í heildina hefur olíunotkun á veitt tonn af afla dregist saman, farið úr 129 lítra á tonn á afla niður í 127 lítra á tonn milli áranna 2017 og 2018.
Fiskmjölsverksmiðjur félagsins, sem áður voru keyrðar á jarðefnaeldsneyti, eru nú að mestu leyti rafvæddar og er leitast við að nota raforku í stað eldsneytis þegar framboð leyfir. Eldsneytisnotkun fiskmjölsverksmiðjanna minnkaði um 7,5% á milli áranna 2017 og 2018. Olíunotkun á framleitt tonn úr fiskmjölsverksmiðjum félagsins minnkaði einnig milli ára og er komin í 8,4 lítrar/tonn. Engin svartolía var notuð árið 2018. Í stað svartolíu er notuð MDO olía (e. marine diesel oil) á Akranesi og MGO olía (e. marine gas oil) á Vopnafirði. Báðar olíurnar hafa mun minni umhverfisáhrif en svartolía.
Markmið félagsins er að færa sig enn frekar yfir í umhverfisvænni eldsneytistegundir á næstu árum. Með samningum um samkeppnishæft raforkuverð til fiskmjölsverksmiðja má reikna með að hlutur raforkunotkunar aukist á kostnað olíunotkunar í framtíðinni.
Eldsneytisnotkun bifreiða og tækja er lítil í samanburði við skipaflota en hún minnkaði um 28% á tímabilinu 2017 til 2018. Notkunin nemur 41.298 lítrum, sem er að meðaltali 1.652 lítrar fyrir hvern bíl HB Granda.
HB Grandi stefnir á aukna notkun rafmagnsbíla og tvinnbíla á næstu árum. Samhliða því hefur félagið sett upp hleðslustöðvar fyrir bifreiðar félagsins, starfsfólk og gesti.
Árið 2018 var raforkunotkun HB Granda 63.720.385 kWst, sem er sambærilegt við árið 2017 en töluverð aukning frá árinu 2016, þegar raforkunotkunin nam 48.690.008 kWst. Raforkunotkun jókst því á þessu tveggja ára tímabili um tæplega 30%. Það er jákvætt að hlutur endurnýjanlegrar raforku vaxi og gerir félaginu mögulegt að draga verulega úr notkun á jarðefnaeldsneyti.
HB Grandi lítur svo á að raforka á Íslandi sé græn og því sé mikilvægt að nýta hana í stað jarðefnaeldsneytis þegar mögulegt er. Helstu tækifæri HB Granda í þessum efnum er við framleiðslu á fiskmjöli. Einnig felast tækifæri í því að tengja skip við landrafmagn þegar þau eru bundin við bryggju.
Síðasta vor var lokið við að endurnýja hafnarbakkann við fiskiðjuverið við Norðurgarð. Bakkinn er 120 m. langur og 20 m. breiður stálbakki með steyptri þekju með snjóbræðslulögn sem nýtir affallsvatn frá fiskvinnslu HB Granda.
Þessi breyting stórbætir alla hafnaraðstöðu fyrir ísfiskskip félagsins. Fyrir var gömul trébryggja sem komin var vel til ára sinna. Með nýjum og stærri hafnarbakka voru nýjar og öflugar landtengingar við rafmagn og heitt vatn teknar í notkun. Nú geta öll ísfiskskip félagsins tengst umhverfisvænni orku þegar skipin liggja við bryggju við Norðurgarð.
Við Ísbjörninn er rafmagnstenging sem frystiskipin nota, en ekki heitt vatn. Á Akranesi er bæði rafmagn og heitt vatn til landtengingar skipa. Engin landtenging á rafmagni eða hitaveitu er til staðar á Vopnafirði.
HB Grandi er með þrjár fullbúnar flokkunarstöðvar fyrir annars vegar almennan úrgang og hins vegar endurvinnsluhráefni. Þessar þrjár flokkunarstöðvar, ein á Vopnafirði, Kistan á Akranesi og Svanurinn í Reykjavík, eru fullbúnar flokkunarstöðvar þar sem stafrænum lausnum er beitt bæði hvað varðar skráningu á almennum úrgangi og endurvinnsluhráefni.
Við flokkum sorp, hvort sem það fellur til á sjó eða í landi, og endurnýtum það eins og hægt er. HB Grandi hefur síðustu ár skipulagt mikið flokkunar- og umhverfisstarf með það markmið að lágmarka þann úrgang félagsins sem fer í urðun. Að frumkvæði starfsfólks hófst sorpflokkunarverkefni fyrir níu árum á Vopnafirði, og í dag eru starfræktar flokkunarstöðvar á öllum starfsstöðvum félagsins. Þær taka jafnt á móti sorpi sem kemur frá skipum og vegna starfsemi í landi. Hlutfall flokkaðs sorps árið 2018 var 76%.
Á árinu var haldið áfram að streyma upplýsingum um losun úrgangs með rafrænum hætti inn í umhverfisuppgjör félagsins. Árið 2018 einbeittum við okkur að því að framkvæma alla daglega losun úrgangs rafrænt með snjallvog og snjallgámi. Á Vopnafirði var komið upp rafrænni skráningu fyrir almennt sorp á hafnarvoginni á staðnum. Þaðan fór töluvert magn af almennum úrgangi til urðunar. Í samstarfi við sveitarfélagið á Vopnafirði hefur verið komið upp nýju verkfyrirkomulagi þar sem upplýsingar streyma jafnóðum inn í umhverfisuppgjörið um leið og úrgangur fer til urðunar.
Fyrir almennan úrgang, sem fer að mestu leyti í urðun, er notaður svokallaður „snjallgámur“. Allur úrgangur, sem fer inn í hann, er skráður á þá deild þar sem hann á uppruna sinn. Gámurinn er með vog sem skilar upplýsingum um magn úrgangs inn í umhverfisgagnagrunn félagsins. Allt endurvinnsluhráefni er flokkað eftir skilgreindu flokkunarkerfi. Hver endurvinnsluflokkur er vigtaður með „snjallvog“ og merktur með úrvinnsluleið í umhverfisgagnagrunn félagsins.
Í umhverfisgagnagrunni HB Granda er haldið sérstaklega utan um alla skráningu á úrgangi, þ.e. magn, tegund, úrvinnsluleið, förgunarleið og uppruna á almennum úrgangi.
Fyrsti snjallgámurinn varð að veruleika í ágúst 2017 í Kistunni, flokkunarstöð HB Granda á Akranesi. Í byrjun árs 2018 voru snjallgámur og snjallvog komin á allar þrjár flokkunarstöðvar félagsins. Hjá HB Granda starfar sérþjálfað starfsfólk sem vinnur við bestu aðstæður á starfssvæðum félagsins í sérútbúnum flokkunarstöðvum.
Hampiðjan tekur á móti öllum veiðarfæraúrgangi frá HB Granda. Áhafnir skipa félagsins eða starfsfólk flokkunarstöðva þess sker burt ýmsa nytjahluti. Hampiðjan sker burt þá nytjahluti sem eftir eru. Þeir efnisbútar, sem ekki eru hæfir til endurvinnslu, eru flokkaðir frá og sendir í urðun hérlendis. Hampiðjan sendir allan endurvinnanlegan veiðarfæraúrgang úr landi og er hann seldur til erlendra endurvinnslustöðva.
Endurvinnslustöðvarnar þvo veiðarfæraúrganginn og er hann hakkaður niður í smáar agnir og síðan flokkaður sjálfvirkt með þar til gerðri tækni. Endanleg vara er hráefni til plastgerðar. Togvírar eru bútaðir í grandara sem HB Grandi endurnýtir.
Hampiðjan vinnur náið með Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og skilar til SFS tölum yfir útflutt magn veiðarfæraúrgangs frá HB Granda og öðrum sjávarútvegsfélögum sem áframsendir þær upplýsingar til Úrvinnslusjóðs samkvæmt samningi við sjóðinn.
SFS er með samning við Úrvinnslusjóð um að samtökin beri ábyrgð á að úrgangsveiðarfæri úr gerviefnum séu endurunnin. Um leið er nýtt heimild til undanþágu á úrvinnslugjaldi á veiðarfærum úr gerviefnum. Ekki er tekið skilagjald en þess í stað ber SFS ábyrgð á verkefninu fyrir hönd sjávarútvegsins.
Ekki urðu nein tjón á árinu þannig að veiðarfæri yrðu eftir í sjó.
Ráðstöfun veiðarfæraúrgangs 2018 | Eining | |||
---|---|---|---|---|
Tegund veiðarfæra | kg | Endurnýting | Urðun | Heildarmagn |
Fiskitroll PE/PP/PEP | 28.872 | - | 28.872 | |
Flottroll PA Multifilament | 24.675 | 31.380 | 56.055 | |
Nótaefni PA Multifilament | 23.000 | - | 23.000 | |
Netateinar og kaðlar PES/PE/PA | - | 21.760 | 21.760 | |
Flot | - | 2.460 | 2.460 | |
Rockhoppers | - | 37.840 | 37.840 | |
Brotamálmur | 35.000 | - | 35.000 | |
Samtals | kg | 111.547 | 93.440 | 204.987 |
Unnið var að því árið 2018 að ná heildarmynd af endurvinnslu veiðarfæra félagsins. Áður en veiðarfæri fara til Hampiðjunnar í endurvinnslu og til Sorpu í urðun, er málmur flokkaður frá veiðarfærum eins og hægt er í flokkunarstöðum HB Granda. Þessi málmur blandast öðrum málmum sem fara í endurvinnslu og náðist ekki að aðgreina magnið frá öðrum málmum sem fóru í endurvinnslu árið 2018. Gera má því ráð fyrir að það vanti inn í töfluna töluvert magn af málmum af veiðarfærum sem fara í endurvinnslu. Þeir málmar eru þó taldir með í umhverfisuppgjöri HB Granda hér neðst á síðunni.
Í öllum skipum HB Granda fellur reglulega til úrgangsolía sem fer til endurvinnslu hjá Olíudreifingu ehf. og Skeljungi hf. Olíudreifing og Skeljungur eru verktakar Úrvinnslusjóðs um söfnun og endurvinnslu úrgangsolíu samkvæmt samningi við Úrvinnslusjóð og er sú starfsemi fjármögnuð með úrvinnslugjaldi sem lagt er á smurolíu við innflutning samkvæmt lögum.
Úrgangsolía er að mestu til komin vegna smurolíuskipta í vélum skipanna en einnig, að minni hluta, frá eldsneytisolíu og glussaolíu. Hún er endurunnin og seld sem verksmiðjuolía. Þessari úrgangsolíu safna skipin í sérstakan tank sem staðsettur er um borð og er í umsjá vélstjóra. Tankurinn er tæmdur eftir þörfum í tankbíl sem endurvinnsluaðili sendir til skipsins þegar þörf er á tæmingu.
Vetnisflúorkolefni hafa verið notuð sem kælimiðlar og komu í stað eldri efna sem voru skaðleg ósonlaginu. Síðar kom í ljós að vetnisflúorkolefni eru öflugar gróðurhúsalofttegundir. Þessir kælimiðlar eru í notkun í nokkrum skipum HB Granda. Ársnotkun er mæld út frá magni viðkomandi kælimiðla sem er bætt á kerfin og koma nú fyrst fram í umhverfisuppgjöri 2018.
Markmiðið með samgöngustefnu HB Granda er að hvetja starfsfólk félagsins til að nota vistvænan, hagkvæman og heilsusamlegan ferðamáta. Félagið vill einnig sýna gott fordæmi með því að auka vitund starfsfólks um vistvænar samgöngur og jafnframt leggja sitt af mörkum til að bæta umhverfið og heilsu starfsmanna sinna og annarra.
Samgöngusamningur stendur því starfsfólki til boða sem hefur unnið lengur en þrjá mánuði hjá HB Granda eða er fastráðið og getur skuldbundið sig til að nota vistvænan ferðamáta til og frá vinnu, t.d. með því að ganga, hjóla, hlaupa eða nota almenningssamgöngur. Samningurinn gildir að hámarki í tólf mánuði frá undirritun hans og er uppsegjanlegur af hálfu beggja aðila með eins mánaðar fyrirvara.
Í lok árs 2018 voru 172 starfsmenn með samgöngusamninga sem er 22% af heildarfjölda stöðugilda og aukning um 16 frá fyrra ári.
Umhverfisuppgjörið hér að neðan geymir yfirlit um helstu þætti umhverfismála hjá HB Granda. Gögnin innihalda alla starfsemi HB Granda að undanskildum dótturfélögum, ef frá eru talin tilvik þar sem dótturfélög samnýta flokkunarstöðvar með HB Granda.
Aðferðafræðin sem er notuð til að skilgreina eigin virðiskeðju og mengunarþætti hennar byggist á Greenhouse Gas Protocol, staðlaðri aðferðafræði sem fjöldi fyrirtækja hefur innleitt með góðum árangri.
Til að tryggja áreiðanleika og tíðni umhverfisuppgjöra HB Granda byggist söfnun umhverfisupplýsinga á sjálfvirkri gagnasöfnun frá meginstarfsemi og birgjum félagsins en þannig er hægt að fylgjast með ávinningi af einstökum aðgerðum í umhverfismálum.
Eining | 2018 | 2017 | 2016 | |
---|---|---|---|---|
Kolefnisuppgjör | ||||
Umfang 1 | tCO2í | 61.365 | 57.815 | 64.421 |
Umfang 2 | tCO2í | 835 | 856 | 766 |
Umfang 3 | tCO2í | 2.925 | 101 | 94 |
Kolefnisspor, heild | tCO2í | 65.125 | 58.772 | 65.281 |
Samdráttur í losun milli ára | -10% | 10% | 5% | |
Leiðréttur samdráttur, leiðrétt vegna kælimiðla sem eru ný í uppgjöri 2018 | -6% | |||
Orkunotkun | ||||
Orka vegna notkunar jarðefnaeldsneytis | kWh | 244.186.930 | 243.089.969 | 271.398.866 |
Raforkunotkun | kWh | 63.720.385 | 62.904.866 | 48.690.008 |
Orka frá heitu vatni til húshitunar | kWh | 14.447.916 | 18.551.648 | 25.995.310 |
Heildarorkunotkun | kWh | 322.355.231 | 324.546.483 | 346.084.184 |
Eldsneytisnotkun bifreiða og tækja | lítr. | 41.298 | 57.231 | 45.925 |
Eldsneytisnotkun fiskmjölsverksmiðja | lítr. | 973.444 | 1.052.625 | 1.431.892 |
Eldsneytisnotkun skipaflota | lítr. | 21.301.288 | 19.792.119 | 21.858.285 |
Heildareldsneytisnotkun | lítr. | 22.316.030 | 20.901.975 | 23.336.102 |
Hlutfall endurnýjanlegrar orku | % | 24% | 25% | 22% |
Hlutfall endurnýjanlegrar raforku | % | 100% | 100% | 100% |
Hlutfall skipagasolíu af heild (MGO) | % | 42,6% | 31,2% | 1,7% |
Neysluvatnsnotkun | ||||
Heildarnotkun á neysluvatni | m3 | 1.006.704 | 966.316 | 1.078.779 |
Myndun úrgangs og úrvinnsla | ||||
Flokkaður úrgangur | kg | 793.317 | 910.383 | 1.267.953 |
Óflokkaður úrgangur | kg | 193.097 | 216.290 | 355.567 |
Heildarmagn úrgangs | kg | 986.414 | 1.126.673 | 1.623.520 |
Almennur rekstrarúrgangur | kg | 802.346 | 835.667 | 852.470 |
Þar af flokkaður úrgangur | - | 609.249 | 652.603 | 496.903 |
Þar af óflokkaður úrgangur | - | 193.097 | 183.064 | 355.567 |
Framkvæmdaúrgangur | kg | 39.510 | 159.820 | 576.040 |
Lífrænn úrgangur frá framleiðsluferlum | kg | 144.558 | 131.186 | 195.010 |
Hlutfall flokkaðs rekstrarúrgangs | % | 76% | 78% | 58% |
Rekstrarúrgangur til endurvinnslu | kg | 505.129 | 591.120 | 461.288 |
Rekstrarúrgangur til urðunar | kg | 297.217 | 244.547 | 391.182 |
Hlutfall endurunnins rekstrarúrgangs* | % | 63% | 71% | 54% |
*Hér má sjá hversu vel endurvinnsluaðilar ná að nýta flokkað sorp hjá HB Granda. Nái endurvinnsluaðili að nýta allt flokkað sorp til endurvinnslu ætti þetta hlutfall að vera jafn hátt og hlutfall flokkaðs rekstrarúrgangs. | ||||
Pappírsnotkun skrifstofu | ||||
Heildarmagn prentaðs pappírs | blaðsíður | 173.656 | 184.275 | 172.665 |
Þar af litaprentun | % | 58% | 71% | 64% |
Þar af svarthvít prentun | % | 42% | 29% | 36% |
Þar af prentun á báðar hliðar | % | 29% | 23% | 25% |
Veiði | ||||
Veiði ísfisktogara | tonn | 29.302 | 24.548 | 25.277 |
Veiði uppsjávarskipa | tonn | 119.950 | 109.281 | 95.594 |
Veiði frystitogara | tonn | 17.836 | 19.039 | 20.984 |
Heildarveiði | tonn | 167.233 | 152.868 | 141.855 |
Eldsneytisnotkun skipaflota | ||||
Eldsneytisnotkun ísfisktogara | lítr. | 6.796.681 | 5.956.214 | 6.355.171 |
Olíunotkun/veitt tonn (VT) | lítr./VT | 231 | 243 | 251 |
Losun GHL ísfisktogara | tCO2í | 18.865 | 16.221 | 17.108 |
Losun GHL/veitt tonn (VT) | tCO2í/VT | 0,64 | 0,66 | 0,68 |
Eldsneytisnotkun uppsjávarskipa | lítr. | 8.194.585 | 6.463.549 | 6.277.210 |
Olíunotkun/veitt tonn (VT) | lítr./VT | 68,3 | 59,1 | 65,7 |
Losun GHL uppsjávarskipa | tCO2í | 22.746 | 18.356 | 17.476 |
Losun GHL/veitt tonn (VT) | tCO2í/VT | 0,19 | 0,17 | 0,18 |
Eldsneytisnotkun frystitogara | lítr. | 6.310.025 | 7.372.356 | 9.225.905 |
Olíunotkun/veitt tonn (VT) | lítr./VT | 354 | 387 | 440 |
Losun GHL frystitogara | tCO2í | 17.515 | 20.525 | 25.685 |
Losun GHL /veitt tonn (VT) | tCO2í/VT | 0,98 | 1,08 | 1,22 |
Heildareldsneytisnotkun skipaflotans | lítr. | 21.301.291 | 19.792.119 | 21.858.286 |
Lykiltölur | ||||
Heildarvelta | m€ | 210,7 | 217,3 | 201 |
Fjöldi ársverka | fj.áv. | 773 | 839 | 859 |
Heildarkolefnisskattur | millj.kr. | 206 | 128 | 138 |
Fjöldi mannvirkja | fj. | 22 | 26 | 26 |
Stærð húsnæðis | m2 | 54.172 | 59.394 | 59.394 |
Fjöldi skipa í rekstri að meðaltali yfir árið | fj. | 8 | 9 | 9 |
Þar af ísfisktogarar | - | 4 | 4 | 4 |
Þar af frystitogarar | - | 2 | 2,9 | 3 |
Þar af uppsjávarskip | - | 2 | 2 | 2 |
Fjöldi bifreiða | fj. | 25 | 25 | - |
Þar af rafmagnsbílar | - | 3 | 3 | - |
Þar af tengitvinbílar | - | 3 | 2 | - |
Brot gegn umhverfislögum | já/nei | nei | nei | nei |
Umhverfisstjórnunarkerfi | já/nei | já | já | já |
Samningar innihalda ákvæði um umhverfismál | fj. | 17 | 13 | 10 |